Leita í fréttum mbl.is

Letiveður og öðruvísi verkefni.

Maður er nú hálf latur í þessu veðri, það verður að segjast og mér verður hugsað til hennar Kollu sem er að spóka sig núna úti á Flórída með familíunni, vona að þau hafi það súper gott :) Annars er það að frétta að nú er fjölskyldan á mínum bæ að rétta úr sér eftir veikindi og ég dreif mig, enn hálf slöpp þó, í verkefni á þriðjudagsmorgunn þar sem ég kenndi nokkrum konum á mömmumorgni í Seljakirkju að farða sig. Þarna voru samankomnar svona 10 skvísur og var þetta hinn fínasti hópur kvenna á öllum aldri.  Ég sýndi þeim bara létta og auðvelda dagförðun, talaði um almennt hreinlæti og húðhreinsun og gaf þeim svo fullt af leyndum ,,bjútí- tipsum" sem gera gæfumuninn þegar maður er flýta sér út á morgnana með börnin á handleggnum :) Þær fengu svo að skoða vörurnar mínar eða dótakassann minn eins og þær kölluðu hann og skrifuðu hjá sér nöfnin á flottum litum og meikum sem þær ætluðu svo að nálgast sjálfar.  Þetta var bara mjög skemmtilegt og öðruvísi og ég væri alveg til í að fara í svona verkefni aftur, maður fer kannski bara að gera bisness úr þessu - enda nóg af mömmumorgnum út um allt :)

Knús á línuna,

Anna Rún.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Rún & Kolbrún Pálína
Anna Rún & Kolbrún Pálína
Vinkonudúettinn bloggar um fegurð hversdagleikans

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband