Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, september 2007

Hér er ég....

Ég er á lífi!  Blush 

Góða kvöldið, ég er aldeilis oft búin að ætla mér að brjóta ísinn eftir bloggleti sumarsins og skrifa eina góða færslu!  Var nú hinsvegar fyrst í dag að fá nettenginu hingað heim enda mátti það ekki seinna vera þar sem að skólinn er byrjaður. Núna er ég sem sagt tengd og hef enga afsökun!  Ég hafði það hrikalega gott í sumarfríinu, eyddi mörgum góðum stundum í sveitinni minni og naut svo auðvitað bara veðurblíðunnar eins og öll þjóðin.  En ég veit ekki hvað ég er að tala um sumarið núna því haustið ákvað bara að berja all hressilega á dyrnar og er mætt í öllu sínu veldi! 

Eins og venjulega er nóg að gera á bænum.  Það gengur glymrandi vel að kenna upp í Snyrtiakademíu, er með efnilegan byrjandahóp núna.  Hinsvegar er það nú kannski að frétta að ég hef ákveðið að setja íþróttarskóna á hilluna ef svo má segja þar sem að ég ætla að hvíla mig á einkaþjálfuninni þennan veturinn sökum nýrra verkefna. Wink  Lífið getur alltaf tekið óvænta stefnu og það er það sem er svo frábært við lífið!  Deili þessum breytingum frekar með ykkur síðar! 

Skólinn í vetur verður vægt til orða spennandi, er í skemmtilegum fögum.  Grafísk hönnun, kvikmyndagerð og fjölmiðlafræði er það sem við munum læra í vetur!  Spennó spennó...

Við þrennan góða, ég, Anna Rún og Þórdís áttum yndislegan lunch í dag og tókum þá ákvörðun að drattast saman í ræktina tvo morgna í viku!  Það verða góðir morgnar! Það verður gaman að fara á æfingu án þess að vera í "vinnunni".

Jæja, ég er allavega mætt aftur!

Kær kv, Kolla.  Smile

 


Höfundur

Anna Rún & Kolbrún Pálína
Anna Rún & Kolbrún Pálína
Vinkonudúettinn bloggar um fegurð hversdagleikans

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband