Leita í fréttum mbl.is

Til lukku boltastelpur!!!

Úpps!!

Við erum ekki búnar að vera að standa okkur í blogginu uppá síðkastið!  Það er nokkuð ljóst!

Mig langar að byrja á að óska landsliðinu okkar innilega til hamingu með glæstann sigur í gær!!! Þetta var frábært!

 

Annars er nóg að gera á bænum eins og alltaf!

  Í morgun afhentum við nemendum snyrtiskólans einkunnirnar sínar, svo er útskrift hjá einum hópnum á morgun.  Ég ætla einmitt að mæta kl 8 í fyrramálið og farða nokkrar skvísur.  Svo var ég bara í þessum töluðu orðum að skila af mér innliti fyrir Hús og Hýbíli.  Fékk að kíkja í ótrúlega skemmtilegt hús hjá hreint út sagt frábærri konu. Fylgjist endilega með því!

Við hjónin erum barnlaus þessa dagana þar sem litli gullmolinn okkar er upp í sumarbústað hjá ömmu sinni og afa.  Ég fór með honum í sveitina í fyrradag og skildi hann svo eftir í gærmorgun.  Ég verð nú að viðurkenna að þetta var hálf undarleg tilfinning.  Við erum búin að vera svo hryllilega mikið saman við mæðginin upp á síðkastið!  En hann unir sér vel í sveitinn, veiddi fyrsta fiskinn sinn í gær og sagði mér stoltur í símann hann hefði sko verið að veiða í svínavatni!!! 

Ég ætla bara að hafa þetta stutt í dag, er að fara að hitta skvísu saumaklúbbinn minn í lunch!

Knús, Kolla.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Áttu þá saumaklúbb líka ekki með skvísum í?

Ætlarðu að leika við mig í næstu viku?

kiddi (IP-tala skráð) 25.6.2007 kl. 21:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Rún & Kolbrún Pálína
Anna Rún & Kolbrún Pálína
Vinkonudúettinn bloggar um fegurð hversdagleikans

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband