Leita í fréttum mbl.is

Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2007

Sumarfríið á enda og bloggletin kvödd

Hola allir!

Bloggfríið okkar Kollu er senn á enda og við vildum bara láta vita að við stöllurnar erum á lífi og búnar að hafa það extra gott í sumarfríinu.  Ég skrapp með fjölskyldunni til Lanzarote og vorum við þar í hálfan mánuð í geggjuðu veðri og frábæru fríi.  Við höfðum það svo gott, vorum á fimm stjörnu + hóteli með öllu, þvílíkur munaður og erfitt að koma heim og þurfa sjálfur að búa um og elda :) Maður gæti sko alveg vanist svona þjónustu.  Ferðin gekk glimrandi vel og allir frískir, kátir, sólbrúnir og endurnærðir eftir dvölina.  Við hjónin erum alveg á því að fara þangað aftur einhvern tímann.  Um versló fórum við svo í sumarbústaðinn okkar og stórfjölskyldan mín var þar samankomin.  Þar var keppt í hinu árlega kubbakasti, þar sem mitt lið varð Þingvallameistari þetta árið, farið í göngutúra, spilað út í hið óendanlega, borðað og aftur borðað, sungið, leikið og dansað. Þvílíkt fjör og skemmtilegasta ættarmót sem ég fer á. 

En eftir versló tók veruleikinn aftur við, vinnan og hversdagsleikinn en eftir allt er alltaf gott að komast í rútínuna sína aftur, maður getur líka orðið þreyttur á fríinu.................... :)

Þar til síðar......

Anna Rún.


Höfundur

Anna Rún & Kolbrún Pálína
Anna Rún & Kolbrún Pálína
Vinkonudúettinn bloggar um fegurð hversdagleikans

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband