Leita í fréttum mbl.is

Vinnuhelgi og Júróvisíon

Enn ein helgin komin og smá vinnuhelgi í þetta sinn.  Fór í hádeginu að farða 4 konur fyrir brúðkaup.  Alltaf gaman að taka þátt í þessum degi með fólki, visst stress og mikil eftirvænting í bland.  Fór svo um fjögurleytið að kíkja á brúðina og tékka á því hvort förðunin hennar væri í lagi en hún ákvað að farða sig sjálf, enda förðunarfræðingur og einn af mínum gömlu nemendum, en hún þurfti samt smá lokasamþykki frá mér þessi elska :)  Hún var auðvitað stórglæsileg með gerviaugnhár og alles. Vá, og kjóllinn hennar var algjört æði, bara innilega til hamingju Harpa mín!!  Annars er ég búin að vera í vinnupásu þessa viku því stelpan mín nældi sér í skarlatssótt svo ég hafnaði tveimur vinnudögum með Fiann ljósmyndara og líka auglýsingu fyrir Ísafold sem átti að taka í gær.  Kolla skvísa tók svo forsíðuna í gær fyrir marsblaðið, hlakka til að sjá útkomuna enda algjör drottning á forsíðunni en Kolla sá um stíliseringuna líka :).  Annars er gaman að segja frá því að við Kolla höfum átt allar forsíðurnar hjá Ísafold á þessu ári og alla tískuþætti auðvitað líka :) 

Já, og svo er Evróvision, eða Júróvisíon eins og ég vil bera það fram, í kvöld. Auðvitað á að hafa það kósí fyrir framan imbann í kvöld og fylgjast spenntur með en Ragnheiður vinkona á textann við lagið hans Jónsa sem bróðir hennar Trausti samdi.  Auðvitað heldur maður með sinni konu og vonast til þess að hún vinni.  En af öðrum lögum finnst mér lagið hans Friðriks Ómars líka vera ekta Júróvisíon lag og finnst það frekar sigurstranglegt.  Við sjáum hvað setur en áfram Ragnheiður/Trausti/Jónsi..................

En góða helgi allir og gangiði hægt um gleðinnar dyr.

Over and out, Anna Rún.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til lukku með fína síðu

 knús
Soffia

Soffia (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 23:08

2 identicon

Takk Anna mín Rún og þið báðar....til hamingju með flotta síðu, það verður svo gaman að geta fylgst með ykkur í framtíðinni, þið eruð svo miklir snillingar og heimsins mestu englar!!

Þetta var geggjað gaman í gær. Allt var svo frábært, þó að ég hefði viljað sjá hann Jónsa í einu af þremur efstu sætunum. En ég er viss um að Eiríkur verður okkur til sóma í Finnlandi. Hann syngur alla vega í leðurfrakkanum sem Teddi gaf honum (mín hugmynd, mér finnst þetta svo forljótt ferlíki og gott að hann er kominn í hendurnar á manni sem vill og getur komist upp með að nota svona flík). Nú er spennufall hjá minni og er orðin hundslöpp, vona að ég sé ekki að fá einhvern flensuskít.

Hafið það mega fínt og haldið áfram að gera góða hluti elskurnar mínar :o))

Rosaknús!
Ragnheiður

Ragnheiður Bjarnadóttir (IP-tala skráð) 18.2.2007 kl. 23:25

3 identicon

Elsku snúllan mín.

Innilega til hamingju með flotta síðu. Efast ekki um að þið stöllur eigið eftir að gera það gott sem „teymi“ í framtíðinni. Gangi ykkur sem allra allra best!

Risaknús!

Mamma (Hildur)

HIldur Gísladóttir (IP-tala skráð) 23.2.2007 kl. 19:36

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Anna Rún & Kolbrún Pálína
Anna Rún & Kolbrún Pálína
Vinkonudúettinn bloggar um fegurð hversdagleikans

Færsluflokkar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband